Svona er munurinn á snjó­mokstri í Kópa­vogi og Reykja­vík: „Mikill munur þennan veturinn“

Er­lendur S. Þor­steins­son yfir­maður þróunar­sviðs CCP tölvu­leikjarisans birtir skýrslu á snjó­mokstri í Kópa­vogi kl 09:45 í morgun.

„Skýrsla frá Kópa­vogi. Kl. er 09:45 og snjó­komu hefur linnt. Í Linda­hverfi eru snjó­moksturs­­tæki að *klára* að skafa húsa­­götur; einungis Fjalla­lindin er eftir og ég er að horfa á snjó­moksturs­­tækið þar út um eld­hús­­gluggann,“ skrifar Er­lendur.

Hann bendir á að einnig sé búið að skafa A og B Salii en ekki D+. Kóra­hverfið hefur verið skafið nema A.

Tekur heila vinnuviku í Reykjavík

Á sama tíma í Reykja­vík er reiknað með því að það muni taka allt að fimm daga að skafa húsa­götur.

„Þetta hefur tekið 4-5 daga að klára allar húsa­götur í Reykja­vík og það hefur ekkert breyst, þótt að á­kallið sé að klára þetta fyrr,“ segir Eiður Fannar Er­lends­son yfir­maður vetrar­þjónustu hjá Reykja­víkur­borg í sam­tali viðFrétta­blaðið.

Hann tekur undir að þetta sé á­minning að hægt sé að bæta starfs­um­hverfi þeirra með kaupum á fleiri tækjum.


„Við erum með öflug tæki en það þyrfti kannski fleiri tæki til að þetta myndi ganga hraðar. Það myndi hjálpa okkar starfi mikið.“

Það virðist ekki mikill skortur á tækjum í Kópa­vogi enda flestar götur færar snemma morguns.