„Þetta eru vond tíðindi.“ skrifar fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason á Facebook um tilkynningu Drífu Snædal þar sem hún tilkynnir um afsögn sína sem formaður ASÍ. Í ummælum undir færslu Drífu skrifar Egill jafnframt: „Mjög leitt að heyra.“
Þúsundþjalasmiðurinn Illugi Jökulsson virðist vera á sama máli og Egill um afsögnina. Hann skrifar: „Þetta er hörmulegt.“
Og þá skrifar kynjafræðingurinn Sóley Tómasdóttir: „Svo hræðilega sorglegt. Takk fyrir þennan slag elsku Drífa“
„Guð minn góður segir maður bara. Sorglegt að sjá og heyra. Bestu kveðjur til þín, þinna og ASÍ.“ segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason um málið.
Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, tjáir sig jafnframt um málið og finnst ákvörðunina vera slæma í aðdraganda kjaraviðræðna. „Þetta eru slæmar fréttir í aðdraganda kjaraviðræðna en gangi þér vel í því sem tekur við.“
Nokkur flokkssystkini Helgu tjá sig um málið. „Takk fyrir þína baráttu kæra Drífa og samskiptin okkar á milli.“ skrifar þingkonan Oddný Harðardóttir um málið, og Heiða Björg Hilmisdóttir segir: „Verkalýðshreyfingin er ein merkilegasta mannréttindahreyfing heims og hefur sannarlega verið það hér á íslandi í gegnum tíðina. Þar hefur þú verið öflug og mikil eftirsjá af þér úr þessu mikilvæga hlutverki - takk fyrir allt !“
Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingkona Vinstri grænna segir: „„Þar missti verkalýðshreyfingin öflugan leiðtoga.“