Starfsmenn Unique hár og spa, heilsulindar í Síðumúla, lentu í heldur leiðinlegri uppákomu síðdegis þegar viðskiptavinur sem fékk klippingu og strípur stökk út án þess að borga.
Fyrirtækið greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Sæl öll, vorum að lenda í einkennilegu atriði, hér bókar tíma nýr kúnni, labbar inn með grímu, fær klippingu og strípur og klárar meðferðina sína hjá okkur, stekkur svo út í bíl til að "sækja kortið sitt" og við höfum ekki séð hana síðan. Þessi kona er ekki til á fésbókinni og símanúmerið hennar er að sjálfsögðu ekki til,“ segir í færslunni.
Þá er því bætt við að nú sé verið að fara yfir eftirlitsmyndavélar til að skoða hvort einhvers staðar sé til andlitsmynd af konunni. „Sem er ekki líklegt, þar sem hún tekur ekki niður grímuna. Verum á varðbergi gagnvart þessu fólki!,“ segir í færslunni.
Í frétt RÚV er haft eftir eiganda stofunnar, Jóhönnu Maríu Gunnarsdóttur, að grímuskyldan geri starfsfólki erfitt um vik að bera kennsl aftur á konuna. Það hafi í raun ekki verið talið óeðlilegt að hún þyrfti að skjótast út í bíl eftir veskinu sínu en almennt komið það til baka og geri upp. Í þessu tilviki kom konan þó ekki til baka.
Sæl öll, vorum að lenda í einkennilegu atriði, hér bókar tíma nýr kúnni, labbar inn með grímu, fær klippingu og strípur...
Posted by Unique hár og spa on Miðvikudagur, 12. ágúst 2020