Sjö einstaklingar sem greindust með COVID-19 hér á landi á föstudag voru með annað afbrigði veirunnar en hingað til hefur verið greint hér á landi. Sjömenningarnir komu til landsins frá landi sem talið var öruggt síðastliðinn fimmtudag en þau svikust undan heimkomusmitgát.
Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV.
Íslensk erfðagreining rannsakaði veiruna og komst að þeirri niðurstöðu að fólkið hefði verið með annað afbrigði en greinst hefur hérlendis. Að því er fram kemur í frétt RÚV er fólkið frá Rúmeníu og þurfti embætti ríkislögreglustjóra að leita fólksins eftir að smitið kom í ljós.
Ekkert innanlandssmit hefur greinst hér á landi vegna hópsins.