Svo virðist vera sem Ísland sé eini raunhæfi áfangastaður þeirra Svía sem hyggja á ferðalög utan landsteinanna. Danir, Finnar og Norðmenn hafa lokað fyrir komur Svía til þeirra, en eins og kunnugt er hefur Svíþjóð farið illa út úr COVID-19 faraldrinum.
Ekkert smit af völdum COVID-19 hefur greinst hér á landi í viku en faraldurinn er enn í fullum gangi í Svíþjóð. Í frétt Aftonbladet kemur fram að 40 einstaklingar hafi látist þar síðastliðinn sólarhring af völdum COVID-19. Hafa nú 4.854 einstaklingar látist í Svíþjóð í faraldrinum.
Norsk yfirvöld tilkynntu í dag að þeir sem koma frá Svíþjóð þurfi að fara í 2 vikna sóttkví við komuna. Þetta á við um alla íbúa Svíþjóðar nema íbúa Gotlands, eyju sem er um 90 kílómetra austan við meginland Svíþjóðar. Þeir Svíar sem hyggja á ferðalög til Íslands þurfa þó ekki að fara í sóttkví heldur skimun eins og aðrir sem koma til landsins.
Í frétt Fréttablaðsins í dag kemur fram að flugáætlun Icelandair geri ráð fyrir þremur flugferðum til Stokkhólms á viku frá 15. júní til 1. júlí.