Svíar líklegast einu Norður­landa­búarnir sem þurfa að fara í skimun

Þór­ólfur Guðna­son, sótt­varna­læknir mun á næstu dögum til­kynna nýja lista yfir örugg ríki. Í frétt RÚV í kvöld kom fram að öll Norður­löndin verða lík­legast á listanum, nema Sví­þjóð. Þá er talið lík­legt að Þjóð­verjar þurfi heldur ekki að fara í skimun við komuna til alndsins.

Hingað til hafa bara Fær­eyjar og Sví­þjóð verið á listanum yfir örugg ríki.

Með þessari á­kvörðun verður hægt að hleypa fleiri ferða­mönnum inn í landið. Til­kynnt var í dag að Ís­lensk erfða­greining mun sjá um skimun við landa­mærin í viku í við­bót en síðan mun Land­spítalinn taka við. Sú staða gæti komið upp að flugum verði af­lýst ef ferða­menn verða fleiri en skimunar­geta spítalans ræður við.

Páll Þór­hall­son, verk­efna­stjóri í for­sætis­ráðu­neytinu, segir í sam­tali við RÚV að hingað til hefur allt gengið upp með góðu sam­starfi allra aðila en nú fer að reyna veru­lega á sam­starfið vegna áhua ferða­manna á að koma til landsins.

Hann gat ekki svarað því hvernig valið yrði á milli flug­fé­laga ef öll flug komast ekki en benti á að allir mega koma til landsins en ef fólk er ekki skimað þarf það að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Sótt­varna­læknir býst þó ekki við því að til niður­fellinga komi alveg strax en listinn verður kynntur í þessari viku. Hann segir að vaxandi þrýstingur um að fá fleiri faþrega til landsins hafi spilað inn í og flýtt ferlinu en það var ekki út­slita­at­riði.