Sverrir Agnarsson, fyrrverandi formaður Félags múslima hér á landi, segir að ýmsar bábiljur hafi verið gegnumgangandi á samfélagsmiðlum um mál egypsku flóttafjölskyldunnar sem nú er í felum hér á landi.
Sverrir rekur þær helstu í athyglisverðri grein á vef Vísis, en ein þeirra er sú að egypskir meðlimir Múslímska bræðralagsins taki að streyma til landsins ef fjölskyldunni verður leyft að dvelja hér áfram.
„Það er engin hætta á að Egyptar streymi hingað – nokkur samtöl við vini og kunningja í Kairo leiða í ljós að það þarf alla vega tvær skráningar og 4-5 stimpla til að sleppa út og menn eru undir eftirliti allan tímann á flugvellinum og komast ekki í gegnum eftirlitið nema sýna sk öryggisvottun og hreina sakaskrá og meðlimur í MB á ekki sjens í að fá þessi vottorð. Egyptaland er með landamæri að Israel, Líbýju, Súdan og stutt yfir Aqaba sundið til Saudi Arabíu. Meðlimir í MB Geta ekki flúði til þessara landa,“ segir Sverrir.
Þá hefur verið bent á að Múslímska bræðralagið séu hryðjuverkasamtök. Bendir hann á að eingöngu Egyptaland, Sádi-Arabía, Furstadæmin, Rússland og stjórn Assads Sýrlandsforseta skilgreini Múslímska bræðralagið í Egyptalandi sem hryðjuverkasamtök.
Sverrir hrekur fleiri atriði í pistlinum sem má lesa í heild sinni hér.
Í pistlinum varpar Sverrir svo ljósi á það sem gæti gerst fari svo að fjölskyldan verði send aftur til Egyptalands.
„Þegar egypska fjölskyldan sem nú er í felum á Íslandi hittir lögregluna í Kairó, en það verða íslenskir lögreglumenn sem afhenda kollegum sínum hana, þá eru íslensk stjórnvöld í beinni samvinnu við yfirvald sem stundar reglulegar og umfangsmiklar pyntingar. Í skýrslu frá Amnesty frá því í fyrra stendur í raun skrifað að faðirinn (og mögulega móðirin) verði pyntaður og hversu langt verður gengið veltur á tímanum sem það tekur að brjóta hann niður. Þetta er afgerandi niðurstöður Amensty – og mistök að senda fólk í þetta umhverfi. Yfirvöld hér véfengja ekki hans frásögn. Hvernig er þá hægt að senda fjölskylduna til baka? Eru engin lög eða reglur sem gilda um framsal fólks til landa sem stunda pyntingar?“