Sverrir Garðarsson, tónlistarmaður og fyrrverandi formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) er látinn. Sverrir lést á Landakotsspítala þann 7. desember síðastliðinn, 86 ára að aldri.
Greint er frá andláti hans í frétt í Morgunblaðinu í dag.
Sverrir var ungur að árum þegar hann hóf að spila á trommur í danshljómsveitum. Hann spilaði til dæmis með hljómsveit Gunnars Ormslev og hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar. Þá spilaði tríó Sverris á Hótel Loftleiðum um margra ára skeið. Gunnar kom víðar við í tónlist og var til dæmis slagverksmaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands um margra ára skeið.
Sverrir var formaður FÍH í rúm 20 ár, eða frá 1968 til 1987, og var helsti hvatamaðurinn að stofnun Tónlistarskóla FÍH. Hann var einnig virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og sat meðal annars í flokksráði og verkalýðsráði. Þá átti hann sæti í miðstjórn ASÍ um tíma.
Útför Sverris fer fram frá Fossvogskirkju á mánudag.