Svekkt eftir sund­ferð sonarins – Skórnir horfnir þegar hann kom upp úr

„Nú get ég ekki orða bundist,“ segir Nicho­le Leigh Mo­sty, fyrr­verandi þing­maður Bjartrar fram­tíðar, í Face­book-hópi íbúa Breið­holtsins.

Nicho­le segir þar frá leiðin­legu at­viki sem henti son hennar sem skellti sér í sund. Þegar hann kom upp úr kom í ljós að búið var að stela skónum hans, flottum Timberland-skóm sem eru ekki ó­keypis. Hafði sonur hennar að­eins átt þá í einn mánuð.

Nicho­le segir að eðli málsins sam­kvæmt hafi sonur hennar ekki viljað fara með blauta skóna inn í klefa, en svo virðist sem ekki sé hægt að geyma skó í skó­hillum fyrir utan búnings­klefann. Óskar hún eftir að fá upp­lýsingar ef ein­hver veit meira um málið.

Fjöl­margir tjá sig undir færslunni og benda sumir á að þeir komi aldrei í nýjum eða ný­legum skóm í sund, ein­mitt af þeirri á­stæðu að þeim gæti verið stolið. Sumir segjast alltaf taka skóna með sér inn í klefa og skiptir þá engu hvort þeir séu blautir eða skítugir.

Nicho­le segist þakka fyrir góðar og gagn­legar at­huga­semdir en í þessu til­viki hafi sonur hennar ekki viljað ó­hreinka skápinn. Mark­miðið með færslunni hafi verið að óska eftir upp­lýsingum ef ein­hver skyldi hafa séð eitt­hvað. Segir hún þó að þjófnaðurinn verði kærður til lög­reglu og vonast hún til þess að lög­regla geti farið yfir upp­tökur úr öryggis­mynda­vélum.