Sveitar­stjórinn ó­sáttur eftir Kast­ljós: „Hrokinn af­hjúpast og öfundin stendur strípuð eftir“

„Það er magnað þegar svo gamal­dags kommúnískar al­ræðis- og for­ræðis­hyggju hug­sjónir opin­berast fyrir framan al­þjóð. Þegar hrokinn af­hjúpast og öfundin stendur strípuð eftir.“

Þetta segir Þröstur Frið­finns­son, sveitar­stjóri Grýtu­bakka­hrepps. Þröstur segir á Face­book-síðu sinni að það hafi hitnað lítil­lega í honum þegar hann horfði á Kast­ljósið í gær­kvöldi. Al­dís Haf­steins­dóttir, for­maður Sam­bands ís­lenskra sveitar­fé­laga og bæjar­stjóri Hvera­gerðis­bæjar, ræddi þar mál­efni sveitar­fé­laganna vegna kórónu­veirufar­aldursins.

Stórir á­kveði ör­lög hinna smáu

Þröstur skrifaði grein um málið sem birtist á Vísi í morgun. Þar segir hann að það sem hafi einna helst vakið at­hygli hans var þegar Al­dís fór að ræða um sam­einingar sveitar­fé­laga. Þá hafi hún farið gegn sínu for­manns­hlut­verki.

„Í sam­þykktum sam­bandsins er skýrt kveðið á um að hlut­verk þess er að gæta hags­muna sveitar­fé­laga. Þar er klár­lega meint allra sveitar­fé­laga en ekki bara sumra og alls ekki sumra gegn öðrum. Hún að­hyllist al­ræðis­hyggju að ofan og telur eðli­legt að full­trúar hinna stóru á­kveði ein­hliða ör­lög hinna smáu, sama hvað líður vilja íbúa þeirra,“ segir Þröstur í grein sinni.

Þröstur segir að Al­dís hafi vitnað til til­lögu sem lands­þing Sam­bands ís­lenskra sveitar­fé­laga sam­þykkti í haust, en hún fól í sér kröfu um nýtt fé inn í Jöfnunar­sjóð vegna sam­einingar­fram­laga. Hún hafi nefnt boðaðar lækkanir fram­laga sjóðsins vegna kreppunnar og að mörg sveitar­fé­lög reiði sig á sjóðinn.

Ó­heiðar­legur mál­flutningur

„Lof­orð um nýtt fé í sjóðinn til sam­eininga hafa þegar verið ræki­lega svikin, samt telur hún rétt að skerða fram­lög Jöfnunar­sjóðs enn meira til að fjár­magna sam­einingar­fram­lög. Er for­maðurinn viss um að það sé al­mennur vilji sveitar­stjórnar­stigsins? Hún telur einnig al­ger­lega ó­á­sættan­legt að mörg lítil sveitar­fé­lög hafi góðar tekjur og séu fjár­hags­lega sjálf­stæð. Hún læðir því með­fram að þau séu mörg að þiggja þjónustu af stórum ná­grönnum, væntan­lega án þess að greiða sann­virði fyrir.“

Þröstur segir að þetta sé ó­heiðar­legur mál­flutningur formanns þessara frjálsu fé­laga­sam­taka og raunar fá­heyrður í sögu­legu til­liti.

„Hún telur sig einnig hafa um­boð til að segja Al­þingi fyrir verkum og vill fá í gegn and­lýð­ræðis­leg lög um í­búa­lág­mark strax í vor. Myndi hún vilja bjóða í­búum Hvera­gerðis upp á slíka þvingun, að verða t.d. skikkaðir í sam­einingu við Ár­borg án þess að hafa neitt um það að segja? Það verður að telja afar hæpið, en hún mætti þá alla vega upp­lýsa ef henni finnst það til­hlýði­legt ráð­slag.“

Öfundin stendur eftir

Þröstur segir Al­dísi telja að það gangi ekki að hafa lítil og sjálf­bær sveitar­fé­lög með góða tekju­stofna. Þeim verði að út­rýma á altari al­ræðis­hyggju hinna stóru.

„Það er magnað þegar svo gamal­dags kommúnískar al­ræðis- og for­ræðis­hyggju hug­sjónir opin­berast fyrir framan al­þjóð. Þegar hrokinn af­hjúpast og öfundin stendur strípuð eftir. Að það sé ó­tækt að sum lítil sveitar­fé­lög séu sterk­efnuð, að sveitar­fé­lög ættu helst öll að vera á­móta illa stödd fjár­hags­lega. Því sé nauð­syn­legt að skerða lýð­ræðis­legan stjórnar­skrár­varinn rétt íbúa minni sveitar­fé­laga. Verður að telja afar sér­stakt svo ekki sé meira sagt, að slíkar hug­myndir komi frá for­ystu­manni í Sjálf­stæðis­flokknum til ára­tuga.“