Fjöldinn allur af fyrirtækjum nýttu hlutabótaleið stjórnvalda til að vernda stöðu starfsmanna sinna að því er kemur fram á lista sem Vinnumálastofnun birtir.
Sveitarfélög, opinber hlutafélög og sjálfseignastofnanir eru einnig á listanum.
Meðal þeirra eru sveitarfélögin, Dalvíkurbyggð, Strandabyggð og Skútustaðahreppur og tvö byggðasamlög, Strætó og Sorpa.
Þá eru einnig opinberu hlutafélögin Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús og Íslandspóstur á listanum.
Mörg fyrirtæki á listanum starfa í ferðaþjónstu en einnig má finna fjölda íþróttafélaga, veitingafyrirtæki, og líkamsræktarstöðvar, tannlæknastofur, snyrtistofur og verkfræðistofur svo fátt eitt sé nefnt.
Brimborg bílasala, H&M og Miklatorg, eignarhaldsfélag IKEA, eru einnig á listanum.
Þá má á listanum finna fjölmiðlafyrirtækin Sýn hf., Birtíng útgáfufélag og Myllusetur ehf, útgefanda Viðskiptablaðsins.
Frumvarp með þrengri skilyrðum um hlutabótaleiðina í vinnslu
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa er nú í vinnslu. Markmið þess er að framlengja hlutabótaleiðina, setja skilyrði um 25% samdrátt í starfsemi vinnuveitanda og skilyrði um 50% starfshlutfall frá og með 1. júlí 2020. Einnig eru lagt til að auka heimildir Vinnumálastofnunar til gagnaöflunar og jafnframt viðurlög við brotum á reglum um upplýsingagjöf.
Þá eru aukin skilyrði lögð til sem gera meðal annars ráð fyrir að vinnuveitandi staðfesti að hann hafi á tímabilinu 1. júní 2020 til 31. maí 2023 ekki í hyggju að greiða út arð, lækka hlutafé með greiðslu til hluthafa, greiða óumsamda kaupauka eða kaupa eigin hlutabréf.