Sveinn Rúnar Sigurðsson, lagahöfundur og læknir, fékk ekki símtal frá starfsmanni rússneska sendiráðsins vegna ummæla hans í Söngvakeppninni síðasta laugardagskvöld.
Eins og Fréttablaðið greindifrá skrifaði Sveinn færslu á Facebook í morgun þar sem hann sagðist hafa fengið símtal frá „froðufellandi starfsmanni rússneska sendiráðsins“ í kjölfar viðtals við hann í Söngvakeppninni á laugardagskvöldinu.
Í samtali við Vísi hins vegar segir Sveinn að færsla hans sé „haugalygi“ og eins konar gjörningur á brenglaða upplýsingagjöf frá Rússum.