„Ég hef barist sjálfur við ofþyngd meginhluta fullorðinsáranna. Og baráttan er enn í dag. Náði býsna langt upp í þyngd rétt eftir aldamótin, en hef síðan þrammað á línu yfirþyngdar og offitu samkvæmt BMI.“
Þetta skrifar fyrirlesarinn og markaðsstjórinn Sveinn Waage í pistli sem birtist á Vísi í dag,þar sem hann fjallar um offitu. Hann segir umræðuna flókna, og óttast að fyrir skrif sín muni hann verða skammaður fyrir skoðanir sínar.
„En hvað sem því líður er ófrávíkjanleg staðreynd að líkamleg og andleg heilsa mín líka batnar og versnað eftir því magni af aukakílóum sem ég burðast með allan daginn. Ef þau eru 20 þá eru það 10 mjólkurfernur í hvorri hendi allan daginn, alltaf. Þá er bakið í drasli, hné og mjaðmir að kvarta, úthaldið ekkert, svefninn í tjóni og HVERNIG getur þá andlega hliðin verið sterk?“ spyr hann.
„Það virðist engu máli skipta hversu ókleift fjall staðreynda um skaðsemi offitu verður, „aðgát skal höfð“ með tilheyrandi ákúrum á sendiboðana toppar fjallið nánast alltaf. „Orð hans/hennar eru uppfull af fordómum, fáfræði og fyrirlitningu“ er gusan sem allflestir aðilar lærðir sem ólærðir fá yfir sig.“ segir Sveinn.
Hann bendir á að offitufaraldurinn sé mannkyninu gríðarlega erfiður, en segir að umræðan virðist ekki alltaf eiga sér stað, og líkir því við trúarbrögð „Við höfum því fordæmi í fortíð og nútíð, hvernig staðreyndir meiga sín lítils gagnvart sterkum tilfinningum og hugarfari. Er offitan ekki einmitt soldið þannig í raun? Tilfinningar sem trompa staðreyndir? “ spyr hann.
„En já BMI er gallaður kvarði en að meðaltali og sem endurtekin viðmið virkar hann til að sýna ógnvænlega þróun án hlutdrægni og tilfinninga. Og þróunin er einmitt ógnvænleg. Getum við rætt þennan alvarlega vágest af þeirri alvöru sem hann á skilið?“ skrifar Sveinn sem minnist á fólk sem lést fyrir aldur fram vegna ofþyngdar.
„Og AUÐVITAÐ eiga allir að fá að vera alls konar, í útliti, kynhneigð nefndu það. Fordómar eru ömurlegir punktur, hvort sem það er gegn öðrum kynþáttum, kynjum eða feitum. Allt ömurlegt. En, gæti verið ráð að aðskilja líkams-vanvirðingu annars vegar í umræðunni um offitu og læknisfræðilegar staðreyndir hins vegar? Við bara verðum, og vil ég hrósa því heilbrigðisstarfsfólki sem þorir að stíga fram opinberlega og segja sannleikann, þrátt fyrir hættuna að fá fordóma- og/eða gerendastimpil á sig um leið.“
Þetta skrifar Sveinn í lok pistils síns, sem endar á eftirfarandi orðum: „Má ég vera feitur? Já, auðvitað en ekki ef ég vil lifa lífinu heilbrigðari, líða betur á sál og líkama. Svarið fyrir mig og mína nánustu er því nei.“