Sveinn Guð­bjarts­son er látinn

Sveinn Þ. Guð­bjarts­son, fyrr­verandi for­stjóri Sól­vangs, er látinn, 82 ára að aldri. Greint er frá and­láti Sveins í Morgun­blaðinu í dag. Sveinn var Hafn­firðingur í húð og hár og var á­berandi á mörgum sviðum í bænum um langt skeið.

Sveinn fæddist í Hafnar­firði þann 28. janúar árið 1938 og stundaði nám í stjórnun heil­brigðis­stofnana í Gauta­borg. Hann var í 35 ár stjórnandi á heil­brigðis­sviði, heil­brigðis­full­trúi Hafnar­fjarðar, fram­kvæmda­stjóri Heilsu­gæslu Hafnar­fjarðar og for­stjóri Sól­vangs.

Þá var hann vara­for­maður SUS, átti sæti í stjórn full­trúa­ráðs sjálf­stæðis­fé­laganna í Hafnar­firði og var stofn­fé­lagi Golf­klúbbsins Keilis í Hafnar­firði. Þá var hann for­maður Í­þrótta­banda­lags Hafnar­fjarðar og lands­for­seti JC á Ís­landi. Þá var hann einn af stofn­endum Kiwanis á Ís­landi og tók þátt í stofnum fleiri Kiwanis­klúbba svo fátt eitt sé nefnt.

Sveinn kvæntist Svan­hildi Ingvars­dóttur árið 1959 en hún lést í mars síðast­liðnum. Þau eignuðust eina dóttur, tvö barna­börn og þrjú barna­barna­börn.