Sveinn Elías tók málin í eigin hendur: Tók fjóra tíma en vel þess virði – Sjáðu myndirnar

Sveinn Elías Elíasson, fyrrverandi frjálsíþróttakappi, tók málin í eigin hendur um helgina og fjarlægði veggjakrot sem gert hefur mörgum vegfarendum í Efra-Breiðholti lífið leitt að undanförnu.

Sveinn Elías vakti athygli á þessu í Facebook-hópnum Íbúasamtökin Betra Breiðholt þar sem hann birtir fyrir og eftir myndir. Óhætt er að segja að gjörningur Sveins hafi fallið vel í kramið hjá íbúum sem eru honum þakklátir enda veggjakrot almennt mikil sjómengun.

„Það er fátt sem pirraði mig meira en þegar maður keyrir uppí Breiðholt og veggjakrotið blasir við manni í Blikahólum þegar maður kemur upp brekkuna. Þá loksins lét maður að því verða að fjarlægja það,“ segir Sveinn í færslunni og bætir við að þetta hafi tekið hann fjórar klukkustundir en verið vel þess virði.

„Verði ykkur hinum að góðu sem þetta fór líka í taugarnar á. Vonandi getur þetta lið sleppt því að spreyja aftur þarna,“ segir Sveinn og bætir við að fyrir tveimur árum hafi tveir duglegir íbúar í Blikahólum tekið sig til og græjað einn skúrinn. Hann var mjög þakklátur þeim fyrir að laga sjónmengunina en viðurkennir að hann hafi verið svekktur þegar krotið var komið aftur nokkru síðar.