Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, varaborgarfulltrúi Miðflokksins, segist hafa beðið hóp unglinga sem hann hitti fyrir utan verslunarmiðstöðina Fjörðinn í Hafnarfirði afsökunar á þeirri framkomu sem þeim mætir.
Sveinn Hjörtur segir frá þessu í athyglisverðri færslu á Facebook-síðu sinni, en yfirskrift pistilsins er: HVERS VEGNA HLUSTUM VIÐ EKKI?
Ungmennin, hátt í tuttugu talsins, voru í unglingavinnunni og var verkefni þeirra að hreinsa illgresi sem komið var í stéttina fyrir utan.
„Þau voru í "Vinnuskóla," að læra af þeim eldri að vinna, læra verklag og öðlast kunnáttu. Sá sem lætur ungling skafa upp arfa með lítilli handskóflu hlýtur að vera í annarri vídd en við hin. Það er eitthvað að,“ segir Sveinn.
Hann segir að eftir samtals hans við þessa frábæru unglinga hafi komið í ljós að ekki er hlustað á þá og svo virðist vera sem vilji til að leyfa þeim að koma með skoðun og athugasemd sé enginn.
„Einhver mynd af verkstjóra yfir þeim mætir í mýflugumynd, setur handskófluna í hendur þeirra og skipar fyrir. Svo er hann rokinn í burtu,“ segir hann.
Hann segir að unga fólkið sem hann hitti sé eldklárt. Þau hafi bent á það að auðvelt væri að beita háþrýstidælu á illgresið og það tæki vafalítið styttri tíma en að kroppa það upp úr stéttinni með skóflunni.
„Annar sagði að það þýddi ekkert að koma með athugasemd, þau væru dæmd löt eða annað. „Stundum stelumst við í að fara í körfubolta."“
Sveinn segir að vinnuskóli í dag sé grín.
„Það er aukajobb fyrir ágæta háskólanema í sumarvinnu að vera verkstjóri og sem augljóslega - þarna amk - hafa ekkert vit á því að hreinsa stéttar. Ungmennin voru með á hreinu verklagið en á þau var - og er ekki hlustað! Þetta er til skammar!,“ segir Sveinn sem endar færsluna á þessum orðum:
„Að endingu baðst ég afsökunar á þessari framkomu á þeim. Þau eiga ekki skilið svona framkomu. Þetta er lítið skárra annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjavík er Vinnuskólinn eitt stórt grín. Það gleymist að sjá í þessu að þetta eru arftakar þjóðarinnar. Þetta er fólkið sem mun hlúa að okkur er við verðum eldri. Hlustum á þau!“