Sveinn Andri vill að fólk hætti þessu væli

Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur hvatt þá sem látið hafa í sér vegna sóttvarnarhúss að hætta þessu væli.

Hörð gagnrýni hefur komið fram þar sem Íslendingar – jafnt og útlendingar – eru skikkaðir í sóttvarnarhús í fimm daga geti þeir ekki sýnt fram á bólusetningarvottorð. Íslenska U21 árs landsliðið og fylgdarlið þess, starfsmenn KSÍ og fjölmiðlamenn, dvelur nú á hóteli eftir að hafa komið frá Ungverjalandi í gær.

Fjölmargir lögfræðingar hafa stigið fram og gagnrýnt þennan ráðahag – telja jafnvel að lagagrundvöllur sé ekki fyrir honum og hafa velt því fyrir sér hvort ríkisstjórnin sé að baka ríkissjóði skaðabótaskyldu. En Sveinn Andri er á öðru máli og vill að fólk sýni samstöðu.

„Við sem sýnum sóttvarasamstöðu og neitum okkur um utanlandsferðir fögnum þessum nýjustu og löngu tímabæru sóttvarnaráðstöfunum. Ef einhver kemur til mín og biður mig um að sækja mál fyrir sig út af dvöl í þessu lúxus-sóttkvíarhóteli, mun ég segja viðkomandi að hætta að væla. Sóttvarnir heillar þjóðar og almannaheill eru mikilvægari en það hvort fólk taki út sóttkví heima hjá sér eða á lúxushóteli. Lagagrundvöllurinn er aukaatriði.“