Sveinn Andri telur Davíð senda fyrrum vini sínum dulda pillu

Hæsta­réttar­lög­maðurinn Sveinn Andri Sveins­son skrifar heldur betur á­huga­verða færslu í dag um Reykja­víkur­bréf Davíðs Odds­sonar rit­stjóra Morgun­blaðsins,.

„Fyrir margt löngu er ég hættur að lesa prent­út­­gáfu Morgun­blaðsins, enda Snorra­búð stekkur síðan nú­verandi rit­­stjóri tók við. Ég greip í blað um daginn og sá þar um­­fjöllun í Reykja­víkur­bréfi, m.a. um neyðar­lögin sem sett voru í kjöl­far banka­hrunins. Þar segir um dóm Hæsta­réttar nr. 340/2011:
„Ís­­lenskur Hæsti­réttur mat stöðuna rétt og sýndi kjark með dómi sínum um neyðar­lögin."
Þessi pilla sem rit­­stjórinn sendir hér fyrrum vini sínum, ó­­­nefndum fyrr­verandi dómara, er um margt mjög at­hyglis­verð, en sá greiddi sér­­at­­kvæði í málinu,“ skrifar Sveinn Andri og birtir mnd Jóni Steinari Gunn­laugs­syni og Davíð.

Davíð fær þó vörn úr ó­væntri átt í at­huga­semdum þegar Illugi Jökuls­son mætir á svæðið og segir við Sveinn Andra að þetta sé ekki sann­gjarnt.

„Þetta er nú ekki sann­gjarnt, svo ég taki nú upp hanskann fyrir Davíð. Varla finnst þér að hann eigi að taka af­­stöðu til mikil­­vægra dóms­­mála eftir því hvort vinur hans er á þessari skoðun eða hinni?“ skrifar Illugi.

„Þetta er rangur mis­skilningur hjá þér. Með því að segja að meiri­hluti Hæsta­réttar hafi metið stöðu málsins rétt og sýnt kjark með dómi sínum, er hann skv. á­­lyktun e contrario að segja að minni­hlutinn hafi metið stöðuna rangt og sýnt kjark­­leysi,“ skrifar Sveinn Andri.

„Það verður náttúr­­lega öllum að leyfast að meta hlutina rangt. En já, ég veitti eigi nóg­­sam­­lega at­hygli hinum um­­rædda „kjarki,“ skrifar Illugi að lokum.