Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag varpi ljósi á þá klemmu sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í.
Í fréttinni kom fram að 76 prósent landsmanna vilji að útgerðin greiði markaðsgjald fyrir afnot af fiskimiðunum. Vísað er í könnun samtakanna Þjóðareignar, hóps áhugafólks um að þjóðin fái sanngjarnt afgjald fyrir auðlindir, sem Gallup framkvæmdi.
Ef aðeins eru teknir þeir sem afstöðu tóku með eða á móti markaðsgjaldi er hlutfall stuðningsmanna tæp 93 prósent.
Sveinn Andri gerir könnunina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og segir meðal annars:
„Það verður fróðlegt að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn, hinn pólitíski armur sægreifanna, mun reyna að snúa út úr þessum skýra vilja þjóðarinnar. Allt þeirra pólitíska starf gengur út á að moka undir íslenska oligarka sem dæla fé upp úr þjóðarauðlindinni, annað hvort til að koma í skjól í skattaparadísum eða leggja undir sig aðra óskylda starfsemi,“ segir Sveinn Andri og bætir við að lokum:
„Eina leiðin fyrir þau 76% landsmanna sem vilja láta bjóða út aflaheimildir er að kjósa ekki núverandi ríkisstjórnarflokka. Svo einfalt er það.“