Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson, nýskipaður verjandi annar mannanna sem er í gæsluvarðhaldi vegna meints hryðjuverk, segir í samtali við DV að hryðjuverkamálið svokallaða sé hvorki fugl né fiskur.
Lögreglan vildi fá geðlækni til meta skilaboð mannanna sín á milli og hvort þeir væru að grínast en þeirri beiðni var hafnað. „Enda galið, það er dómara að meta ásetning,“ segir Sveinn Andri í viðtali við DV.
Sveinn telur málið vera farsakennt og segir af og frá að umbjóðandi sinn hafi í raun verið að undirbúa hryðjuverk.
„Þetta er kokteill af ósmekklegu gríni og fabúlasjónum. Ekkert á bak við þetta. Til að um tilraun í skilningi refsiréttar geti verið að ræða verður að vera um undirbúningsathafnir að ræða.“
Sveinn segir skjólstæðing sinn vera meinlausan og ófæran um að fremja slík myrkraverk sem lögregla segir hafa verið í uppsiglingu: „Ég hef auðvitað ekki umboð til að tala fyrir hinn. En minn umbjóðandi er algert meinleysisgrey með ofsalegan áhuga á byssum. Hann hefur vissulega gerst sekur um brot á vopnalögum með því að prenta byssur. Þetta varð hobbý hjá honum í covid.“
Sveinn bendir á að fráleitt sé að menn leggi á ráðin um hryðjuverk á opinni spjallrás líkt og hér hafi verið í gangi:
„Það var nú ekki meiri leynd yfir þessu ráðabruggi öllu saman en að þeir voru að fimbulfamba þetta á opinni spjallrás. Töluðu saman á Signal. Minn umbjóðandi gaf lögreglu öll möguleg lykilorð að síma og tölvu. Signal var þarna eins og messenger, hvorki dulkóðað, læst né þannig að texti félli út.“
Sveinn er ekki í nokkrum vafa um hvernig þetta mál, sem hefur verið kallað hryðjuverkamálið, muni enda:
„Það var engin alvara á bak við þetta smekklausa spjall þeirra. Allir sem þekkja minn umbjóðanda vita að hann gæti ekki gert flugu mein. Minn maður verður dæmdur fyrir vopnalagabrot. Punktur. Þetta mál er hvorki fugl né fiskur.“
Þá segir það hafi verið mistök hjá lögreglu að halda blaðamannafund.
„Lögreglan gerði sig seka um að halda ótímabæran blaðamannafund. Það var engin þörf á honum. Hefðu þeir sleppt honum en einbeitt sér að því að upplýsa málið, hefðu menn fljótlega séð að ekki væri rétt að rjúka til og halda fund.“
Sveinn segir ennfremur að umbjóðandi sinn viti ekkert um pólitík og engan veginn nógu mikið til að hatast við tiltekna stjórnmálamenn:
„Hann hefur ekki grænan grun um hver Gunnar Smári er eða Sólveig Anna. Píratar eru í hans huga sjóræningjar. Hann veit minna um pólitík en kisan þín.“
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.