Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ekki mikill aðdáandi Arnars Þórs Jónssonar héraðsdómara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi þingkosningar. Raunar virðist Sveinn Andri ekki heldur vera í miklu uppáhaldi hjá Arnari.
Sveinn Andri gerir pistil Arnars sem birtist í Fréttablaðinu í gær að umtalsefni en í henni skrifaði hann meðal annars um þá dómhörku, fordæmingu og þröngsýni sem stundum einkennir umræðuna á samfélagsmiðlum. Sagði hann meðal annars að pólitísk rétthugsun væri ein helsta ógnin við frjálsa hugsun. Vísaði Arnar meðal annars í grein Ole Antons Bieldtvedt og Hannesar Péturssonar þar sem þeir gagnrýndu skrif hans um ESB.
Sveinn Andri sagði í færslu sem birtist á Facebook-síðu hans í gærkvöldi að „vandamálið með Arnar“ væri það að hann hefði „höndlað stóran sannleik“.
„Allir sem eru ósammála slíkum kyndilberum sannleikans eða reyna að rökræða við þá, eru í augum viðkomandi annað hvort að ganga annarlegra erinda eða skilja ekki og vita ekki neitt. Enda veit hann allt betur en allir aðrir.“
Sveinn Andri gefur skrifum Arnars ekki háa einkunn.
„Þegar ritsmíðar Arnars eru lesnar, eftir að yfirgengilegt orðskrúðið er skolað af, þá stendur ekkert eftir nema innantómar klisjur og rökleysa. Eiginlega bara þvættingur.
Það hefur verið hlutskipti mitt ítrekað að leggja frambjóðandann í rökræðu á fésbók, sem gramdist honum greinilega svo mjög að hann blokkeraði mig. Ekki gæfuleg byrjun á stjórnmálaferli.“