Sveinn Andri ó­sáttur við Moggann: „Á­kveður að upp­nefna manninn í fyrir­sögn“

„Mogginn á­kvað að fara á lága planið,“ segir Sveinn Andri Sveins­son hæsta­réttar­lög­maður sem gerir frétt sem birtist á vef Morgun­blaðsins í gær að um­tals­efni á Face­book-síðu sinni.

Fréttin sem um ræðir sneri að ör­laga­valdinum í Lands­réttar­málinu svo­kallaða en hann var dæmdur í vikunni fyrir akstur undir á­hrifum á­vana­lyfja og brot á vopna­lögum svo eitt­hvað sé nefnt. Var hann sviptur öku­réttindum ævi­langt í níunda sinn.

Í frétt Morgun­blaðsins í gær, sem Andrés Magnús­son er merktur fyrir, er maðurinn nafn­greindur auk þess sem ítar­lega er farið í brota­feril hans sem einna helst varðar um­ferðar­laga­brot og fíkni­efna­brot. Fyrir­sögn fréttarinnar er: Mann­réttinda­maðurinn missir prófið ævi­langt í níunda sinn.

Sveinn Andri þykir frétta­flutningur Morgun­blaðsins heldur ó­merki­legur og segir:

„Venju­lega eru dómar um missi öku­réttinda ekki frétt, hvað þá að við­komandi séu nafn­greindir. Ekki nóg með það, heldur er blaða­manninum svo mikið niðri fyrir að hann verður að sýna van­þóknun sína á manninum sem lagði Sjálf­stæðis­flokkinn í Lands­réttar­málinu að hann á­kveður að upp­nefna manninn í fyrir­sögn. Hvað eru þeir að reykja þarna upp í Há­degis­móum?“