Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson minntist bróður síns, Lúðvígs Árna Sveinssonar, með hlýjum orðum á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Lúðvíg hefði fagnað sextugsafmæli sínu í gær, þann 7. júní, en hann varð bráðkvaddur þann 27. desember 1999. Lúðvíg, eða Lúlli eins og hann var kallaður, var rekstrarhagfræðingur að mennt.
„Lúlli var einn af þessum traustu mönnum sem alfarið er hægt að reiða sig á, enda voru þeir fjölmargir sem það gerðu og sumir lögðu allt sitt traust á hann. Gilti þar einu hvort í hlut áttu börnin, vinirnir, viðskiptafélagar, félagar hans í Val eða litli bróðir,“ segir Sveinn Andri.
Hann segir að ekki hafi liðið sá dagur að þeir væru ekki í sambandi, þar sem þeir leituðu ráða hjá hvor öðrum eða spjölluðu um lífið og tilveruna. Segir Sveinn Andri að Lúlli hafi verið honum stoð og stytta í daglegu lífi og órjúfanlegur hluti þess.
„Söknuðurinn er ávallt mikill en ljúfari er samt minningin um kláran og ljúfan dreng, með glettinn húmor; hvers manns hugljúfi og kvennaljómi, sem engan óvin átti en sæg góðra vina, en umfram allt, bezta bróður sem hægt að vinna í lífsins genalottói.“