Sveinn Andri hjólar í Ólaf Ragnar fyrir að mæra for­seta Kína

Hæsta­réttar­lög­maðurinn Sveinn Andri Sveins­son er allt annað en Ólaf Ragnar Gríms­son, fyrr­verandi for­seta Ís­lands, en Ólafur mærði stjórn­visku Xi Jin­ping, for­seta Kína, ný­verið.

„Ég er viss um að í­búum Hong Kong sem misst hafa sín borgar­legu réttindi finnst stjórn­viska Xi vera alveg geggjuð, svo ekki sé talað um Úígúra í Xinjiang-héraði sem milljónum saman hefur verið þröngvað í fanga- og „endur­menntunar­búðir" á vegum Xi.

Það er býzna merki­legt að maður, sem eitt sinn var prófessor í stjórn­mála­fræði, flokkar harð­ræði, mann­réttinda­brot, brot gegn mann­úð og annað alls kyns of­beldi gegn eigin þegnum sem stjórn­visku,“ skrifar Sveinn Andri á Face­book og deilir frétt Vísis.

Lof Ólafs til Xi var slegið upp á for­síðu ensku­mælandi dag­blaðsins kín­verska kommún­ista­flokksins í dag. Þar er haft eftir Ólafi Ragnar að honum þyki mikið til hug­mynda Xi um stjórnar­hætti koma.

Þar er haft eftir fyrr­verandi for­setanum í ó­beinni ræðu að í per­sónu­legum sam­skiptum hans við Xi hafi honum þótt „mikið til hug­mynda Xi um stjórnar­hætti koma“.