Sveinn Andri: Feginn að vera hættur í Sjálfstæðisflokknum

„Ég átta mig ekki á því hvort þetta er hótfyndni eða ósvífni, en mikið sem ég er feginn að vera hættur í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Sveinn Andri gerir ákvörðun yfirkjörstjórnar Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en yfirkjörstjórnin komst að þeirri niðurstöðu í gær að framboð Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur hefði ekki brotið gegn prófkjörsreglum flokksins.

Guðlaugur Þór Þórðarson og aðstoðarkona hans, Diljá Mist Einarsdóttir, sem einnig býður sig fram í prófkjörinu, lögðu fram kæru vegna gruns um að bróðir Áslaugar, Magnús Sigurbjörnsson, hefði nýtt aðgang að flokkaskrá flokksins í hennar þágu.

Í úrskurðinum var bent á að Magnús hefði haft aðgang að skránni vegna vinnu sinnar fyrir flokkinn og hann hefði síðast skráð sig inn á hana þann 10. maí. Sveinn Andri gefur lítið fyrir úrskurð yfirkjörstjórnar eins og sést glögglega á færslu hans á Facebook.

„Valhöll og skrímsladeildin að reyna að moka yfir skítinn. Frambjóðendur eiga að hafa jafnan aðgang að kjörskrá og hún er afhent á formi á ákveðnum degi. Framboð Áslaugar var tilkynnt 6. maí og starfsmaður framboðs hennar var með rafænan aðgang að félagsskránni til 10. maí og þann dag fór hann inn á skrána. Aðrir frambjóðendur fengu félagaskrána á síðari tímapunkti á prentuðu formi. Nú segir yfirkjörstjórn Varðar að starfsmaður og bróðir frambjóðandans hafi verið með þennan aðgang „þar sem hann var að vinna að verkefni". Ég átta mig ekki á því hvort þetta er hótfyndni eða ósvífni, en mikið sem ég er feginn að vera hættur í Sjálfstæðisflokknum.“