Sveinn Andri: Eina von Sjálfstæðisflokksins í borginni er að skipta öllum út

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn verði að bregðast við ef ekki á illa að fara í kosningunum í vor.

Sveinn Andri gerði nýja könnun Maskínu um fylgi flokka í borginni að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gær. Samkvæmt henni er Samfylkingin stærsti flokkurinn í borginni með 28 prósenta fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn virðist aftur á móti vera í frjálsu falli en fylgi hans mælist nú 22%. Flokkurinn var sá stærsti eftir síðustu sveitastjórnarkosningar þegar hann fékk tæplega 31% atkvæða. Á þessum tímapunkti virðist því ekki vera margt sem bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda í borginni að loknum kosningum í vor.

Sveinn Andri segir að staðan sem Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í sé hreint ótrúleg.

„Það er ljóst að flokkurinn þarf að fara í mikla naflaskoðun og endurnýjun í kjölfarið. Lausnin er í senn einföld og flókin:

  1. Skipta út öllum borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins.
  2. Gerbreyta stefnumálum og starfsháttum flokksins.“

Eyþór Arnalds, oddviti flokksins, mun hverfa á braut í vor en Hildur Björnsdóttir hefur gefið kost á sér í 1. sætið á lista flokksins.