Sveinn Andri baunar á Brynjar: Haldinn röskun og á­kveðnu blæti – „Ég er búinn að greina þig“

Sveinn Andri Sveins­son hæsta­réttar­lög­maður segir að Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, sé haldinn á­kveðinni röskun og á­kveðnu blæti. „Ég er búinn að greina þig,“ segir hann í at­huga­semd við færslu sem Brynjar skrifaði í gær á Face­book-síðu sína.

Þeir sem fylgst hafa með skrifum Brynjars hafa vafa­lítið tekið eftir því að hann er stundum nokkuð upp­tekinn af stjórnar­and­stöðunni. Í færslu sinni í gær gagn­rýndi hann Sam­fylkinguna harð­lega og sagðist velta fyrir sér hvort hún væri haldin sjálfs­eyðingar­hvöt. Benti hann á mál Ágústs Ólafar máli sínu til stuðnings.

„Nýjasta birtingar­mynd sjálfs­eyðingarinnar er að­förin að Ágústi Ólafi. Ég þekki Ágúst Ólaf ekki mikið en þar sem ég hef meira inn­sæi og betri til­finningu fyrir fólki en aðrir, veit ég að hann er hinn vænsti drengur þótt ó­full­kominn sé eins og við hin.“

Sveinn Andri veltir fyrir sér hvers vegna Brynjar er svona upp- og raunar hel­tekinn af stjórnar­and­stöðunni á Al­þingi.

„Af því má ráða að þing­menn þeirra flokka séu að gera eitt­hvað rétt. Væri hún jafn slöpp og þú vilt meina, gæti þú ein­beitt þér að því, á þessum vett­vangi, að kynna öll þau fram­fara­mál sem þú ert að vinna að á hinu háa Al­þingi, með bros á vör, og gætir látið eins og stjórnar­and­staðan vær ekki til.“

Brynjar svarar því til að honum sé bara svo annt um jafnaðar­menn að það er kvala­fullt að horfa á þessa þróun.

„Svo sérð þú öll fram­fara­mál okkar í frum­vörpum ráð­herra okkar. Mörg mjög góð og önnur síðri eins og gengur og gerist. En ég skil ekkert í þessari tauga­bilun þinni upp á síð­kastið. Þú hefur sér­hæft þig í að verja vondan mál­stað og þá er ég ekki að tala um þetta ESB blæti þitt.“

Sveinn Andri svarar á móti og segist hafa greint Brynjar.

„Ég er búinn að greina þig: Þér hefur aldrei verið annt um jafnaðar­menn. Þú ert hins vegar með Sam­fylkingar-blæti og Pírata-röskun. Það er alveg eins og ríkis­stjórnin sé ekkert að gera (kannski til­fellið) og að þú sem stjórnar­þing­maður sitjir með hendur í skauti. Það eina sem virðist komast að hjá þér er stjórnar­and­staðan og hvað þau eru að gera og ekki að gera.“

Brynjar svarar því til að pólitík felist mikið í að greina and­stæðinginn og gagn­rýna hann svo kjós­endur átti sig betur á því hversu „lítið erindi þessir flokkar eiga.“ Segist Brynjar hafa tekið það að sér þar sem fjöl­miðlar eru svo slappir.

„Kannski full mikið af því góða að eyða allri sinni stjórn­mála­orku í það að gagn­rýna þá sem eru í minni­hluta/stjórnar­and­stöðu. Það fær kjós­endur til að spyrja sig hvort og þá hvað annað þú sért að af­reka,“ segir Sveinn Andri á móti.