Sveini blöskraði vanvirðingin í gær: Börn spörkuðu í hræið og búið var að skera í það

„Í raun voru fáir sem sýndu dauðri skepnunni virðingu, en fleiri algera vanvirðingu með því að afskræma dýrið,“ segir Sveinn Hjörtur Guðfinnsson markþjálfi í færslu á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli.

Sveinn Hjörtur fór á vettvang hvalrekans fyrir utan Garðskagavita í blíðviðrinu á Suðurnesjum í gær en óhætt er að segja að margir hafi gert sér ferð á svæðið til að berja magnaða dýr augum. Sveini blöskraði hins vegar sú vanvirðing sem fólk á svæðinu sýndi hræinu. Hann skrifaði meðfylgjandi færslu á Facebook sem hann gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta:

„HVALREKINN - Það læra börnin...

Fjöldi manns nýttu daginn í dag til útivistar enda kærkomið eftir at síðustu daga og árs. Hvalreka varð vart rétt fyrir utan Garðskagavita og í dag gerðu margir sér leið til að sjá þessa miklu skepnu.

Engin virðing!

Þegar fólk sem mér er nærri kom að hræinu í dag var fjöldi manns og mikið af fjölskyldufólki. Börn spörkuðu í hræið, búið var að skera í það, eiga við ákveðna hluta húðar skepnunnar, og fyrir ofan eitt ljótt sár á dýrinu var búið að teikna lim. Í raun voru fáir sem sýndu dauðri skepnunni virðingu, en fleiri algera vanvirðingu með því að afskræma dýrið.

Mestu mistökin eru þau að Suðurnesjabær skuli ekki bregðast betur við og koma hræinu frá landi. Það eru að verða 5 dagar síðan hvalrekans varð vart.

Auðvitað er hvalreki spennandi, en virðing við náttúruna og líf hennar er mikilvægt. "Það læra börnin sem fyrir þeim er haft!"“