Sveindís Jane fann ástina í enskutíma á Suðurnesjum

Sveindís Jane Jónsdóttir er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins – og þótt víðar væri leitað. Sveindís er í áhugaverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag þar sem hún ræðir meðal annars um framtíðina í boltanum og einkalífið.

Sveindís, sem er 19 ára, skaust fram á sjónarsviðið í haust þegar hún skoraði tvö mörk í sínum fyrsta landsleik gegn Lettlandi. Hún fylgdi svo góðri frammistöðu sinni eftir og er nánast orðin lykilmaður í landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur.

Sveindís samdi við þýska stórliðið Wolfsburg í vetur en var lánuð til Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hyggst öðlast frekari reynslu áður en hún stekkur alfarið út í djúpu laugina.

Í viðtalinu ræðir Sveindís einnig um ástina í lífi sínu en unnusti hennar er Suðurnesjamaðurinn Sigurður Ingi Bergsson. Sigurður er mikill áhugamaður um fótbolta og spilaði hann með Víði í Garði í 2. deildinni í fyrrasumar. Í viðtalinu kemur fram að þau hafi fellt hugi saman þegar þau voru saman í enskutíma í Fjölbrautaskólanum á Suðurnesjum. Hann flutti svo með henni til Svíþjóðar og fær hann stundum að æfa með kvennaliðinu af ákveðinni ástæðu.

„Hann vildi ekki spila fótbolta í Svíþjóð en Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfarinn minn hjá Kristianstad, fær Sigga oft með okkur á æfingar þar sem henni finnst gott að hafa stráka á æfingum. Hugmyndin með því er að auka hraðann á æfingum, þannig að við Siggi æfum stundum saman. Á sama tíma öðlast hann reynslu af að hafa konu sem þjálfara sem er frekar töff,“ segir hún í viðtalinu og bætir við að það sé gott að hafa sinn heittelskaða hjá sér.

„Ég er mjög heppin að Siggi var tilbúinn að flytja með mér til Svíþjóðar og við finnum okkur oft eitthvað skemmtilegt að gera saman hér í Kristianstad. Annars er ég í NPTC-einkaþjálfaranámi á vegum Keilis, sem er 100 prósent fjarnám og hentar mér virkilega vel. Ég hef líka mjög gaman af því að prjóna og nýti frítímann sem ég hef í að prjóna eitthvað fallegt,“ segir þessi frábæra fyrirmynd í viðtalinu sem má lesa í heild sinni hér.