Sveinbjörn: Þetta er það ógeðslegasta í holræsum Reykjavíkur

Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem sinnt hefur viðhaldi á holræsum Reykjavíkurborgar, er í einkar áhugaverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag. Eins og gefur að skilja er farið um víðan völl í viðtalinu og kíkt inn í heim sem er íbúum Reykjavíkur hulinn þó hann sé beint fyrir neðan fætur okkar.

Í viðtalinu kemur fram að Sveinbjörn hafi starfað í holræsum borgarinnar frá því hann hóf störf sem sumarstarfsmaður hjá Reykjavíkurborg árið 1974.

Það kemur kannski ekki á óvart að heyra Sveinbjörn lýsa því að fólk bókstaflega hendi öllu í klósettið. Aðspurður segir hann að holræsin séu ekki eins í bíómyndunum, að minnsta kosti hefur hann ekki enn orðið var við krókódíla eða geislavirkar skjaldbökur.

„Ég verð samt var við maura. Þegar lagnir eru farnar að gefa sig er það möguleiki, en það lagast ef gert er við. En þeir eru oft fyrsti vísirinn að því að það þurfi að skoða lagnirnar.“

En eru rottur í miklum mæli í holræsum borgarinnar?

„Þær eru ekki í þessu mikla magni sem fólk heldur. Við erum dugleg að laga kerfið til að koma í veg fyrir að meindýr komist í lagnir.“

Hann segist ekki finna neitt fyrir lyktinni í ræsunum enda er hann bókstaflega öllu vanur. Hann segir þó að það ógeðslegasta í ræsunum sé fitan.

„Við megum vera miklu harðari í að tryggja að fyrirtæki séu með fitugildrur. Niðri í bæ finnurðu oft lyktina af fitunni í ræsinu fyrir utan góða matsölustaði með djúpsteiktan mat. Hún flýtur alltaf ofan á og ef lögnin er ekki þeim mun betri og beinni getur fitan skapað fyrirstöðu og svo stíflu. Við höfum ekki lent í risastórum fituklumpum eins og sums staðar erlendis en þeir geta engu að síður orðið ansi myndarlegir.“

Viðtalið má lesa í heild sinni hér.