Óhætt er að segja að umræður í íbúahópi Breiðhyltinga á Facebook í gærkvöldi hafi undið upp á sig og endað á fallegan hátt þegar íbúi, Kristján að nafni, kvartaði undan einhverskonar greni skammt frá Mjóddinni í Breiðholti.
„Þetta er ljótt að sjá, rétt við göngubrúnna og bensínstöðina , virðist vera aðsetur fyrir unglinga eða fíkla, bærinn þarf að vera fljótur til að eyða svona bælum áður en þau ná fótfestu,“ sagði íbúinn en Hringbraut fékk góðfúslegt leyfi til að birta myndirnar sem fylgja þessari frétt.
Eðli málsins samkvæmt er þetta ekki eitthvað sem íbúar kæra sig um í sínu hverfi, enda vilja flestir náunganum allt það besta og enginn á að þurfa að hírast í aðstæðum sem þessum.
Óhætt er að segja að allt hafi þetta endað á eins fallegan hátt og hugsast getur þegar einstaklingurinn sem þarna dvaldi, Svavar að nafni, steig fram og sagði sögu sína.
„Elsku fólk. Sá sem "BJÓ" þarna er ég! Í viðjum fíknarinnar á götunni í um 2 ár rétt rúmlega. Það er vissulega gott að búa í Breiðholti. :essi staður og þetta tjald varð til þess að ég komst lífs af. Allan þann tíma sem ég var þarna hafði ENGINN afskipti "skiljanlega" ég veit það ekki en að sjá mörg hver kommentin herna er soldið barnalegt. Hugsum frekar hvað er hægt að gera fyrir fólk sem er raunverulega í þessari stöðu en að líta á eitthvern hátt niður á það...... fordómar af fullorðnu fólki sem auðsjáanlega hefur ekki hunds vit á alkohólisma.... Ég ætlaði mér aldrei að skilja við þetta svona og biðst innilegrar afsökunar fyrir það. Þessu verður kippt í liðinn á morgun. Eftir að ég var þarna hefur annar aðili komið sér fyrir þarna og þarna eru t.d. dekk af reiðhjólum og fl sem ég kannast ekki við og sjónvarp og fl..... En einsog ég sagði þá verður þetta lagað og það á morgun! ást og friður til ykkar.“
Þessi skilaboð Svavars uppskáru mörg hjörtu og fékk hann hlýjar kveðjur frá íbúum sem óskuðu honum alls hins besta. Þá segir einn í annarri athugasemd: „Fíkillinn sem bjó þarna er búinn að vera edrú í 15 mánuði. Hann stendur sig mjög vel og er kominn í vinnu og skóla.“ Sá býðst einnig til að fara og hreinsa svæðið og bjóðast fjölmargir aðilar til að létta undir honum.
„Virkilega fallega gert af þér. Þekki þennan dreng vel. Ótrúlegt að sjá hann í dag miðað við hvar hann var. Heyrðu í mér á morgun. Ég vil hjálpa til með þetta,“ segir einn í svari við athugasemdinni.