Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistarmaður er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandenum.
Svavar Pétur var 45 ára að aldri og greindist með fyrsta stigs krabbamein fyrir fjórum árum. Hann hefur verið opinskár með baráttu sína við sjúkdóminn.
Svavar Pétur var stoltur Breiðhyltingur. Gekk í Hólabrekkuskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Svavar Pétur var menntaður grafískur hönnuður og ljósmyndari en er þekktastur sem tónlistarmaður og textahöfundur. Hann spilaði meðal annars með hljómsveitunum Múldýrinu, Rúnk og Skakkamanage, en í seinni tíð samdi hann og gaf út tónlist undir listamannsnafninu Prins Póló.
Þá hafa veggspjöld með hendingum úr lagatextum hans notið mikilla vinsælda. Svavar var líka frumkvöðull á sviði matvælaframleiðslu og setti á markað Bulsur og Bopp.
Svavar Pétur bjó um tíma ásamt fjölskyldu sinni á Seyðisfirði og seinna á Drangsnesi. Vorið 2014 flutti fjölskyldan í Berufjörð, stundaði þar lífræna ræktun og framleiðslu, og rak tónleikastað og ferðaþjónustu undir nafninu Havarí til haustsins 2020.