Svavar Knútur biður starfsfólk Póstsins í Síðumúla afsökunar: „Mér líður ömurlega yfir þessu“

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur er miður sín yfir framkomu sinni í garð starfsfólks Póstsins í Síðumúla nýverið. Eins og allir vita er mikið að gera á pósthúsum landsins nú í aðdraganda jóla og þarf fólk oft að bíða lengi eftir afgreiðslu.

Í færslu á Twitter biður hann starfsfólkið afsökunar á hegðun sinni:

„Ég bognaði undan buguninni um daginn og var krumpaður í framkomu á pósthúsinu í Síðumúla um daginn. Þetta var eitthvað “perfect storm” álags og vanlíðunar og ég tuðaði og var leiðinlegur við starfsfólk (ekki persónulega) sem var bara að hjálpa mér. Mér líður ömurlega yfir þessu,“ segir Svavar Knútur.‘

Biður hann Póstinn um að koma á framfæri afsökunarbeiðni til starfsfólksins.

„Ég var hundleiðinlegur tuðandi skarfur, þó ég hafi ekki verið að skammast persónulega í starfsfólkinu. Það á ekki að þurfa að taka á móti annars fólks krumpi. Reyni að gera betur framvegis.“

Svavar segir það ekki skipta máli hvort tollurinn hafi verið viðriðinn málið:

„Það er fátt verra en að bregðast eigin gildum og vera versta útgáfan af sjálfum sér. En þetta er kannski ágætis lexía um það að langvarandi ástand óöryggis, sársauka, streitu eða skorts getur grafið undan sjálfsaga og -stjórn hvers sem er. Maður skyldi bíða með að dæma aðra.“