Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að jarðarbúar þurfi að búa sig undir að fá samskonar faraldur og COVID-19 faraldurinn sem nú geysar. Þetta segir Þórólfur í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þórólfur er spurður hvort við getum átt von á fleiri faröldrum á næstunni og þá jafnvel verri en þessum, eins og til dæmis ebólu.
Þórólfur segir að sem betur fer muni ebólan ekki breiðast út í jafn miklum mæli og COVID-19.
„Hún er allt öðruvísi; hún smitast ekki auðveldlega milli einstaklinga heldur þarf snertingu við blóð eða vessa frá sjúklingum. Við myndum aldrei fá svona útbreiddan faraldur af völdum ebólu. En fyrir þá sem hana fá eru 50% líkur á dauða, en þetta er allt öðruvísi sýking,“ segir hann og bætir við:
„En svarið er já, við munum fá aftur svona faraldur. Alveg klárlega. Hvenær það verður veit ég ekki og hvort það verður heimsfaraldur inflúensu, önnur tegund af kórónuveiru eða alveg ný veira, það veit ég ekki. Þetta er ekkert búið, þetta kemur aftur. Það eina sem við vitum er að heimsfaraldur inflúensu kemur á 30-40 ára fresti, og svo aðrar veirur líka. Þess vegna þurfum við alltaf að vera í startholunum og tilbúin að eiga við þetta.“