Svarar engu um meint tveggja ára skipti milli sín og Dags

Einar Þorsteinsson, gefur ekkert upp um hvort rætt hafi verið að hann taki tvö ár í borgarstjórastólnum og Dagur B. Eggertsson tvö. Fréttablaðið spurði Einar út í málin.

Einar segir sig og Dag hafa átt gott spjall í gær. „Eins og ég hef átt við aðra oddvita til að leggja mat á það hvernig landið liggur og ekkert mikið meira um það að segja í sjálfu sér.“

Hann segir Framsókn ekki útiloka neitt samstarf. Fyrst þurfi hann að heyra í oddvitum annarra flokka. Þá spyr Fréttablaðið hvort það komi til greina að Dagur setjist í borgarstjórastólinn í tvö ár og Einar næstu tvö.

„Ég ætla ekkert að tjá mig um það.“