Einstakur hittingur hins níu ára gamla Baltasars Mána og ónefnds svans við Reykjavíkurtjörn í dag hefur vakið athygli víða um land í dag. Baltasar mátti klappa svaninum og vildi svanurinn fá athygli stráksins.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir segir í samtali við Vísi að upplifunin hafi verið einstök. Hún segist aldrei hafa upplifað annað eins. Svanurinn hafi elt strákinn upp á trébekk þar sem hann gaf honum brauð og voru þeir bestu mátar.
Lýsir hún því hvernig þeir félagar hafi spjallað í rúman hálftíma. Á meðan hafi fólk flykkst að til þess að fylgjast með því sem átti sér stað við tjörnina. Fjölskyldan og margmennið eðlilega hissa á þessu þar sem fuglar eru vanalega nokkuð styggir.
„Svanurinn leyfði Baltasar að klappa sér í dágóðan tíma og gerði ekki tilraun til að kroppa í hann. Baltasar sjálfur var ansi hissa á þessu,“ segir Erla. Hún segir á Facebook að augljóst sé að strákurinn sé fuglahvíslari.
Ég á lítinn fuglahvíslara, upplifðum einstakt móment við Reykjavíkurtjörn í gær þar sem Baltasar og gullfallegur svanur sátu í faðmlögum í lengri tíma
Posted by Erla Ósk Ásgeirsdóttir on Sunday, 18 October 2020