Tvíburasysturnar Svanhildur og Hlaðgerður Snæbjörnsdætur fagna 100 ára afmæli sínu í dag. Fréttablaðið ræðir við þær í tilefni dagsins og er óhætt að segja að viðtalið sé skemmtilegt.
„Okkur líður bara ágætlega í dag,“ segir Svanhildur sem segir að lífið sé allt í vana. „Dagurinn í gær er alveg eins og dagurinn í dag og þetta líður bara. Okkur líður samt ágætlega þótt við höfum ekkert sérstakt fyrir stafni, þannig séð.“
Systurnar búa nálægt hvor annarri og eru duglegar að hittast. Þær stytta sér helst stundir með því að hlusta á hljóðbækur. Svanhildur er farin að sjá illa og þá getur verið gott að grípa í hljóðbók. Hún segist vera alæta á bækur en það er þó ein tegund sem hún vill ekki sjá.
„Það er ein bókasort sem ég vil ekki og það eru morðbækur. Þetta kemur manni bara í illt skap og leiðindi þegar það þarf að finna einhverja morðingja. Allir ungir höfundar í dag virðast byrja á morðbókum, ég skil þetta bara ekki, svei mér þá! Er það svona spennandi þegar einhver myrðir einhvern?“
Hlaðgerður tekur undir með systur sinni.
„Þetta er eiginlega það eina sem hægt er að gera, að leggjast upp í rúm og hlusta á hljóðbækur,“ segir hún og bætir við að hún sé ekkert sérlega hrifin af krimmunum heldur. „Ég er ekki fyrir þá heldur. Ég vil heldur góðar ferðasögur og ævisögur.“
Í Fréttablaðinu er rætt við Jónas Ragnarsson, ritstjóra Langlífis og áhugamann um aldur, sem segir að afmæli systranna séu mikil tímamót.
„Það er mjög merkilegt að tvíburar skuli ná hundrað ára aldri á Íslandi. Það eru um átta hundrað manns sem hafa náð hundrað ára aldri á Íslandi en aldrei tvíburar.“