Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaráðs og aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar til margra ára, sá ástæðu til að leiðrétta leiðinlegan misskilning á samfélagsmiðlum í gær.
Ástæðan er sú að Svanhildur var fengin í Lestarklefann á Rás 1 til að leggja mat á sjónvarpsþættina Ráðherrann sem sýndir voru á RÚV í haust við góðar undirtektir. Það var ein setning hjá Svanhildi sem féll ekki vel í kramið hjá almúganum en það var þessi setning:
„Og formaður Framsóknarflokksins að borða í Kringlunni, ég ætlaði ekki að ná mér af hneykslinu. Það borðar enginn í Kringlunni.“
Eins og sést hér að neðan féll þetta ekki beint vel í kramið hjá netverjum, ýmist á Twitter eða á Facebook-síðu RÚV þar sem umfjöllun um málið var deilt.
Þetta er nú meiri gólftuskan framan í fólk utan af landi. Viltu ekki bara segja að við eigum okkur ekki tilverurétt, ha?! Ég er sármóðgaður. Stjörnutorg er okkar Kaffi Vest! https://t.co/bHkv8IpLAs
— Guðmundur Gunnarsson (@gummigunnars) November 18, 2020
Ef hneykslunargjarnir netverjar hefðu lesið meira en fyrirsögnina hefðu þeir komist að því að Svanhildur var ekki að tala um verslunarmiðstöðina Kringluna.
„Til að fyrirbyggja misskilning (of seint, ég veit) er sem sagt mjög virðulegur salur í þinghúsinu sem heitir Kringlan. Þar borðar ekki nokkur maður, en í Ráðherranum er formaður XB látinn troða í sig rúnnstykki þar. Ég er fullkomlega fordómalaus gagnvart stjörnutorgum heimsins,“ sagði Svanhildur á Twitter og leiðrétti misskilninginn.