Svanhildur Hólm í þætti Jóns G. á laugardagskvöld: Þetta var rétti tíminn til að söðla um

Það verða fínir gestir í þættinum Stjórnandinn með Jóni G. sem hefur göngu sína á Hringbraut á laugardagskvöld. Þau Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, og Guðvarður Gíslason, veitingamaður í Petersen-svítunni og Gamla bíó, mæta til Jóns.

Svanhildur Hólm hefur verið tæpt ár sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hún segir að þótt ekki hafi staðið til hjá henni að skipta um starf sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þá hafi hún tekið áskoruninni og talið þetta rétta tímann til að söðla um.

Hún fer yfir það hvernig leiðtogi og stjórnandi Bjarni sé. „Hann er heilsteyptur og sterkur leiðtogi. Hann hefur verið lengi í stjórnmálum og staðið af sér margar atlögur. Það hefur mótað hann og hann er sterkari fyrir vikið. Honum líður vel í eigin skinni.“

Farið yfir það hvers vegna Viðskiptaráð lagði áherslu á alþjóðleg samskipti á Viðskiptaþingi? Hver árangurinn hafi verið af fundinum með þingmönnum fyrir kosningar; hvort hagræðing sé minni hjá ríkinu en einkageiranum; hvort ríkið leiði launahækkanir í samfélaginu og þá þróun að fjölgun starfa sé meiri hjá ríkinu en einkageiranum í faraldrinum.

Um gott ráð í stjórnun segir Svanhildur Hólm: „Ég held ég reyni að nota það mest í stjórnun sem ég nota almennt í lífinu; það er að hlusta. Og stundum er mikilvægt að skilja þau merki sem eru ekki endilega sögð.“