Svan­hildur gáttuð þegar hún sá hverjum hún var að ýta: „Þessi snjór fer ekki í mann­greinar­á­lit“

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­ráðs, greinir heldur betur frá skemmti­legri sögu á Face­book í gær­kvöldi er hún mætti manni sem var fastir í snjónum.

„Í gær þegar ég var að koma í vinnuna sá ég bíl fastan í Borgar­túninu og mann að reyna að ýta honum. Gyða Sólin sem ég er gat náttúru­­lega ekki látið sér slíkt tæki­­færi úr greipum ganga, svo ég keyrði bílinn minn upp á kant og fór út að hjálpa,“ skrifar Svan­hildur.

„Ég sá bara hvít­hærðan hnakkann á öku­manninum, sem ég gerði ráð fyrir að væri eldri maður, en spáði annars ekkert í það hver væri við stýrið, enda upp­­­tekin af því að ýta.

„Það gekk svona ljómandi vel og eftir nokkur “einn, tveir og” losnar bíllinn og kunnug­­leg, ör­lítið nef­­mælt rödd segir: „Þakka ykkur kær­­lega fyrir hjálpina!“„Það var nú ekkert,“ segir maðurinn sem var að ýta með mér, „við skuldum þér nú eitt­hvað fyrir Icesa­ve og ýmis­­legt fleira!“ Ég var sem sagt að ýta Ólafi Ragnari úr skafli,“ bætir Svan­hildur við en fjöl­margir hafa tjáð sig undir færslu hennar.

„Já, krakkar mínir, þessi snjór fer ekki í mann­­greinar­á­lit - hann þvælist fyrir fyrr­verandi for­­setum jafnt og öðrum,“ skrifar Svan­hildur að lokum.