Svan­dís tjáir sig um mál Víðis: „Að sjálf­sögðu nýtur Víðir Reynis­son míns trausts“

Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra ber fullt traust til Víðis Reynis­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns hjá al­manna­varnar­deild ríkis­lög­reglu­stjóra.

Þetta kom fram í við­tali við Svan­dísi í há­degis­fréttum Bylgjunnar í dag og frétt Vísis. „Að sjálf­sögðu nýtur Víðir Reynis­son míns trausts. Hans skila­boð til sam­fé­lagsins hafa verið mjög mikil­væg í marga, marga mánuði. Alveg frá því að far­aldurinn byrjaði í mars,“ sagði Svan­dís meðal annars.

Víðir hefur verið gagn­rýndur fyrir mikinn gesta­gang á heimili hans helgina áður en hann smitaðist af CO­VID-19. Sitt sýnist hverjum í þeim efnum en Víðir er nú í ein­angrun vegna veirunnar..

Svandís sagðist ekki vilja ræða ein­staka at­burði í lífi fólks. Víðir hafi þegar út­skýrt málið og finnst henni að það eigi að duga.

„Ég er ekki í þessu em­bætti til að vega og meta ein­s­taka ein­stak­linga heldur setja megin­­­reglur til að freista þess að ná utan um far­aldurinn.“

Svan­dís sagði eðli­legt að sam­fé­lagið ræddi þessi mál þegar hún var spurð að því hvort gagn­rýnin á hann hafi verið ó­sann­gjörn. Mikil­vægt væri þó að nálgast far­aldurinn og að­gerðir af væntum­þykju, gagn­vart sam­fé­laginu, sjálfum okkur og ekki síður hvert öðru.

Katrín Jakobs­dóttir for­sætis­ráð­herra sagði einnig að Víðir nyti hennar trausts. Hann hefði komið heiðar­lega fram og öll séum við að reyna að fóta okkur í erfiðum að­stæðum.