Svandís Svavars: „Stundum heldurðu að þú komist ekki í gegnum daginn“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðið í ströngu undanfarin misseri. Hún hefur verið í eldlínunni í baráttunni gegn COVID-19 og borið ábyrgð á þeim sóttvarnaráðstöfunum sem gripið hefur verið til – oft við mismiklar vinsældir.

Svandís leggur spilin á borðið í viðtali við fréttavef Mannlífs sem birtist nú um helgina, en þar ræðir hún meðal annars um veikindi dóttur sinnar og fráfall föður hennar, Svavars Gestssonar, í janúar síðastliðnum.

Dóttir Svandísar, Una Torfadóttir, greindist með heilaæxli fyrir um ári síðan og fór í aðgerð í kjölfarið. Svo veiktist faðir hennar þann 1. október og segir Svandís að hann hafi verið sprækasti maður í heiminum fram að því.

„Nokkrum dögum síðar fer Una í segulómun og fékk góðar niðurstöður úr henni, en pabbi bara veikist meira og meira og það var svo í janúar sem hann dó. Ég sakna hans ógurlega,“ segir Svandís sem hefur því mátt þola mikið álag undanfarin misseri, bæði í vinnu og í einkalífinu.

„Stundum heldurðu að þú komist ekki í gegnum daginn, en svo bara gerir maður það. Það er alveg ótrúlegt, með einhverri extra orku sem er einhvers staðar. Ég á líka mikið af góðu fólki, sem betur fer,“ segir hún meðal annars í viðtalinu.