Svandís og Þórólfur boða harðar aðgerðir: „Mjög alvarleg staða“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra boðar stórhertar aðgerðir innanlands í baráttunni gegn Covid-19 faraldrinum. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir tekur í sama streng og reiknar með beinhörðum tillögum. Þetta segja þau í samtölum við Vísi í dag.

„Þetta er náttúrulega bara mjög alvarleg staða eins og þetta lítur út og því miður virðist faraldurinn vera á miklu flugi og ég held að þetta sé alveg skýrt fyrir okkur sem þetta þekkjum að þetta kallar á hertar aðgerðir,“ segir Svandís í samtali sínu við Vísi.

Þó segir hún að þrátt fyrir að staðan sé slæm í dag þá sé ljós við enda ganganna. Ljósið er fólgið í þriðju bólusetningunni, svokallaðri örvunarbólusetningu.

Þórólfur var afar myrkur í máli þegar hann ræddi við fréttastofu Vísis í dag. Hann vill taka afar hart á faraldrinum sem virðist vera í miklum veldisvexti þessa dagana og síðustu vikur og reiknar ekki með að gefa Svandísi þrjá valkosti um herðingar líkt og síðast.

Nú vill hann „beinharðar“ tillögur: „Ég mun sennilega vera með beinharðar tillögur eins og ég hef gert áður frekar en að vera með mismunandi möguleika,“ segir Þórólfur í samtali við Vísi.

Hann segir harðari aðgerðir skila betri árangri en vill þó meina að boltinn sé í höndum stjórnvalda: „Ef við grípum til harðari aðgerða þá væntanlega mundi það standa styttra yfir og náum tökum á þessu fyrr og getum þá aflétt fyrr. Á sama tíma og við erum að reyna að ná meira ónæmi í samfélaginu með örvunarbólusetningu. En á endanum er þetta alltaf ákvörðun stjórnvalda hvaða leið verður farin,“ segir Þórólfur í samtali við Vísi.

Svandís reiknar með að tillögur Þórólfs að hertum aðgerðum innanlands verði rædd á ríkisstjórnarfundi á morgun svo þær taki gildi hið snarasta: „Við höfum reynt að hafa það þannig þegar við erum að herða og þegar staðan er alvarleg að láta aðgerðir taka gildi sem fyrst en auðvitað með hliðsjón af því hvað þarf að vera í lagi til þess að aðgerðirnar geti tekið gildi,“ segir Svandís í samtali við Vísi.

Þá segist hún reikna með að Íslendingar megi búast við að þurfa að búa við takmarkanir á lífum sínum næstu mánuði.