Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, er sátt við valið á manneskju ársins sem kunngjört var í Kryddsíldinni á Stöð 2 í gær.
Fréttastofa Stöðvar, Vísis og Bylgjunnar hefur um áraraðir staðið fyrir valinu á manneskju ársins en að þessu sinni var Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fyrir valinu. Ragnheiður er vel að þessari nafnbót komin enda hefur hún staðið sig vel á þessu erfiða ári.
„Frábært val á manneskju ársins. Ragnheiður Ósk hefur smitað jákvæðni og samstöðu til okkar allra,“ sagði Svandís. Í rökstuðningi fyrir valinu sagði meðal annars:
„Ragnheiður Ósk leiddi starfsfólk heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við að bólusetja nær alla þjóðina – þrisvar sinnum – og tókst á við sögulega aðgerð þar sem bar til tíðinda að Íslendingar fengust til að standa í röð. Áskoranirnar voru fjölmargar en öllum mætt með óbilandi jákvæðni og elju. Yfirvegun og bjart viðmót lituðu andrúmsloftið við bólusetninguna sem ýtti undir sameiningarkraft þjóðarinnar á viðsjárverðum tímum.“