Svanborg: Úlpufyrirtækið ætti að skammast sín

Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, er þeirrar skoðunar að enn sé nokkuð langt í að veturinn láti til sín taka.

Svanborg skrifar skemmtilega bakþanka í Fréttablaðið í dag þar sem hún segir frá auglýsingu sem hún heyrði í vikunni frá ónefndu úlpufyrirtæki. Var auglýsingin á þá leið að það væri að koma vetur.

„Ég veit að jólaauglýsingar fara að koma, strax og skólaupphafs-, námskeiða- og hreyfingarauglýsingum lýkur. En þarna vantar samt heila árstíð inn á milli. Haustið er ekki byrjað. Ég hef ekki haft mikinn tíma til að líta upp úr vinnu að undanförnu. En ég veit að haustið er ekki komið,“ segir Svanborg.

Til merkis um það er hún ekki enn farin að taka upp kartöflur, hún er ekki enn búin að fara í berjamó og rifsberin eru rétt byrjuð að roðna.

„Það er ekki gulnað laufblað að sjá. Og það hafa borist fréttir af rétt tæplega 30°C á Norður- og Austurlandi. Fréttir af vetri eru því stórlega ýktar og ætti úlpufyrirtækið að skammast sín fyrir flumbruganginn. Ég býst við heilsíðuauglýsingu með afsökunarbeiðni til þjóðarinnar strax eftir helgi.“

Svanborg segist raunar ótrúlega oft rekast á fólk sem trúir ekki á íslenskt vor eða haust. Fólk sem heldur því jafnvel fram fullum fetum að aðeins tvær árstíðir séu á Íslandi. Að halda annað sé að lifa í blekkingu.

„Á móti segi ég að þetta er eins og að trúa ekki á frumefni, atóm eða súrefni. Vor og haust koma. Hvort sem fólk trúir á þessar árstíðir eða ekki. Haustið verður litfagurt og tært. Með smá rigningu og roki inn á milli. Vorið kemur svo og dreifir grænum lit yfir óhreinindi sem safnast saman undir snjó vetrarins. Eftir „síðvetrar/snemmvorið“ þegar allt er ljótt. Hvort um sig eru haustið og vorið ekki langar árstíðir. En við reynum að vera opin og fordómalaus gagnvart þeim sem minni eru. Og leyfum öllum að vera með. Líka litlu árstíðunum.“