Svanborg: Hvenær verður komið nóg?

„Í dag erum við enn að tala um einstöku vondu karlana,“ segir Svanborg Sigmarsdóttir, pistlahöfundur Fréttablaðsins, í bakþönkum blaðsins í dag.

Þar skrifar Svanborg um málið sem hefur verið í deiglunni síðustu daga eftir að greint var frá meintu ofbeldi fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar. Í byrjun pistilsins vísar Svanborg í tíst frá sjúkraþjálfara í vikunni sem sagði að morgundagurinn yrði erfiður.

„Fjöldi kvenna sem skilur ekkert í því af hverju verkirnir eru að blossa upp núna. En ég skil, kæru konur,“ sagði sjúkraþjálfarinn.

Fjölmargar konur hafa stigið fram á samfélagsmiðlum síðustu daga og greint frá ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir af hendi karla. Segir Svanborg að enn önnur MeToo-bylgja sé að kvikna og sögurnar séu af allskonar körlum; frægum og óþekktum, valdamiklum og valdalitlum, stórum og smáum, frekjum og indælum körlum.

„Ofbeldið er kynferðislegt, tilfinningalegt og líkamlegt. Það er alls konar og konur hafa þróað með sér leiðir til að takast á við ofbeldið. Takast á við áfallastreituna sem því fylgir. Áreitinu frá vinum og fjölskyldu, sem og ókunnugu fólki sem spyr hvort þær hafi nú ekki bara misskilið eitthvað. Hvort þetta hafi ekki verið óvart. Hvort ekki sé hægt að ná sáttum. Hvort þetta sé nú örugglega satt.“

Svanborg heldur áfram:

„Hið persónulega er pólitískt sögðu annarrar bylgju femínistar á 7. áratugnum þegar þær reyndu að koma ofbeldi gegn konum á dagskrá sem kerfisbundnum vanda samfélagsins. Í dag erum við enn að tala um einstöku vondu karlana. Þetta hljóti að vera bara einstaka jaðarsettir menn sem kunna sig ekki. Þetta geta ekki verið indæli frændinn, vinurinn, bróðirinn, venjulegi maðurinn sem við öll þekkjum.“

Svanborg segir að konur séu orðnar þreyttar, þreyttar á að lifa ekki við sama öryggi, þreyttar á að verða fyrir ofbeldi og þreyttar á að skrifa svona pistla.

„Og ekki síst þreyttar á því að þurfa að minna einu sinni enn á ofbeldið sem þær hafa orðið fyrir, í von um að samfélagið sjái að nú, loksins, sé komið nóg.“