Sigvaldi Kaldalóns, sem er betur þekktur sem Svali, er nú búsettur á Tenerife og er eigandi Tenerife-ferða, ferðaskrifstofu. Hann varar Tenerife-ferðalanga við ákveðnu vandamáli á flugvöllum. Það gerir hann á Instagram-síðu sinni.
„Nú þurfum við að fara að leggjast á eitt og benda flugfélögunm á að það væri geggjað ef þau myndu fara að hamast í bæði Keflavíkurflugvelli og flugvellinum á Tenerife.“ segir Svali, en vandamálið sem um ræðir er stuldur úr töskum.
„Vegna þess að það er alltaf verið að stela einhverju. Það er alveg ljóst að óprúttnir náungar, bæði hér á Tenerife og mögulega í Keflavík geta komist í töskunar þegar þær eru enn inni í vél, áður en þær fara á færibandið.“
Svali segir að um sé að ræða stórt vandamál, og biðlar til fólks að fara ekki með verðmæta muni með sér til eyjarinnar fögru, og ef það neyðist til þess bendir hann fólki á að plasta töskuna vel.
„Það er í hverri einustu viku sem maður er að heyra af þessu: stuldur í töskum. Þannig ekki undir neinum kringumstæðum fara með neitt verðmætt í töskuna þína, ekki taka sénsin á því, nema þá að þú plastir hana vel.“