Svali: Lífið á Tenerife ekki bara dans á rósum – „Alltaf eitt­hvað sem maður er að díla við“

Út­varps­maðurinn geð­þekki Svali Kalda­lóns sem flutti ný­verið til Ten­ri­fe með fjöl­skylduna segir lífið í para­dís ekki alltaf dans á rósunum.

„Bara svo það sé sagt að þá væsir ekkert um okkur hér. Góð vika að baki hjá okkur, sendum góða strauma í cosmosinn til ykkar. Morgun­­bollinn er alltaf á sýnum stað. Yndis­­legt að vakna og rölta út á svalir og fá sér einn eða þrjá,“ skrifar Svali og birtir ljós­mynd með af bollanum.

„Traffíkin hér er að setja allt á hliðina. Erfitt að fá leigu­bíla og engin leið að keyra hér eftir kl 14 á daginn. Ca­bildo de Tenerife að fara í mikil fjár­út­lát til að reyna að bjarga ein­hverju(sem enginn áttar sig á hvað er) í um­­­ferðar­­málunum hér. Það er búið að vera svaka­­lega mikið að gera hjá okkur í vetur og þetta ár fer mjög vel af stað, þó að auð­vitað séu alltaf ein­hverjar skoranir sem þarf að vinna í. En þannig er lífið all­staðar í ver­öldinni,“ bætir Svali við.

„Siggi litli hefur það mjög gott hér þó að hann sakni vina sinna á Ís­landi og bíður spenntur eftir að hitta þá næsta sumar. En hann á líka vini hér og elskar að fara út að hjóla og slaka eins og hann segir. Ung­lingarnir geta ekki beðið eftir að fara til Ís­lands, alveg komnir með nóg af Tenerife í bili. Mennta­­skólinn fram­undan og ljóst að þeir vilja í nám á Ís­landi. Þannig að það er alltaf eitt­hvað sem maður er að díla við og lífið stans­­laust ævin­týri ef maður vill það,“ skrifar Svali að lokum.