Sigvaldi Kaldaóns, betur þekktur sem Svali, segir að eyjarskeggjar á Tenerife finni lítið fyrir hertum samkomutakmörkunum sem tekið hafa gildi á Tenerife og Gran Canaria vegna fjölgunar kórónuveirusmita.
Ljóst er að margir Íslendingar, sem hyggja á jólahald á eyjunni fögru, hafi sopið hveljur þegar hertar takmarkanir voru tilkynntar en talið er að nokkur þúsund Íslendingar verði á Tenerife yfir jólin. Munu breytingarnar þýða að aðeins átta manns geta setið saman við borð á veitingastöðum.
Í færslu á Facebook-síðu sinni hvetur Svali Íslendinga til að örvænta ekki.
„Svo að það sé sagt að þá er Ísland ekki á "high risk" lista svo 12 ára og eldri þurfa bara að sýna fram á bólusetningarvottorð(BV) eða PCR/Antigen og fylla út SpTH(Spanish Travel Health) til að koma til Tenerife,“ segir hann.
Svali bætir við að veitingastöðum sé valkvætt að fara fram á bólusetningarvottorð til að nýta 100% sætapláss og reikna megi með því að einhverjir staðir taki það upp. Þetta eigi þó einungis við um 12 ára og eldri. Flest bendi til þess að reglurnar muni halda til 23. desember hið minnsta.
„Við finnum ótrúlega lítið fyrir þessum breytingum ef ég á að segja eins og er. Allar ferðir hjá okkur halda sér og við getum haldið áfram yfir jólin eins og áður. Maður heyrir það glögglega á öllum sem hér búa að þeir ætla að gera allt til að halda öllu opnu og láta lífið halda áfram.“