Greint var frá því í gær að Svala Björgvins væri gengin út. Sá heppni heitir Alexander Alexandersson. Alexander er fæddur árið 1998 og Svala árið 1977 og því eru 21 ár á milli parsins, sem hefur verið að stinga saman nefjum í um það bil þrjár vikur.
Netheimar hafa logað frá því að Fréttablaðið greindi frá þessu og fjöldinn allur af athugasemdum verið settar undir fréttirnar á samfélagsmiðlum. Athugasemdirnar eru af ýmsum toga en Svala virðist hafa séð sig knúna í að svara að minnsta kosti einni.
Facebook notandi skrifaði athugasemdina: „Vonandi ekki annar dópsali, en það er þó alltaf betra að fá dópið frítt.“
Þá svarar Svala: „Elsku þú. Rosalega ertu óviðeigandi! Ég hef aldrei á ævi minni tekið eiturlyf og ég drekk ekki einu sinni áfengi, vonandi líður þér vel að tala svona um persónu sem þú þekkir ekki neitt. Sendi þér faðmlag því þú þarft greinilega á því að halda.“
Hátt í 500 manns hafa brugðist við athugasemd Svölu.